Já hér er djúpt tekið í árinni en sönn reynslusaga úr Skagafirði. Þannig er mál með vexti að Moli 3 ára labrador blendingur var með ógreint ofnæmi, hann var á ofnæmisfóðri og þurfti að fá sprautu mánaðarlega hjá dýralækni til að halda niðri kláðanum sem var svo mikill að hundurinn var með skallabletti og oft klóraði hann sig til blóðs.
Eigandinn var þreyttur og áhyggjufullur að hundinum liði ekki vel “Dýrið var kvalið og meðferðin var kostnaðarsöm, við vorum farin að íhuga að leyfa honum að fara því við sáum ekki að meðferðin væri að virka til langstíma. Ef það var ekki kláðinn þá var það eyrnabólga. Það var í hálfgerðri uppgjöf sem við ákváðum í samráði við Jón Hörð að “prófa” Sportsman´s Pride Lamb og Rice svona hálfgerð lokatilraun og við vorum ekki með neinar sérstakar væntingar um árangur. En nú er komið ár síðan við skiptum á fóðrið. Við sáum man ég strax mun á honum hægðirnar voru fínar, feldurinn fékk fljótt þennan gljáa og var ekki eins þurr. Kláðinn hætti þar með og allt í einu fattaði ég að við vorum komnir langt yfir á tíma með næstu ofnæmissprautu. Skemmst frá því að segja að hann hefur ekkert farið aftur í sprautur og það besta er að hann er aftur orðinn glaður, eins og hann hafi yngst við þetta. Verðum ekkert vör við hárlos að ráði og hann er bara glansandi heilbrigður.”
Takk fyrir að deila með okkur sögunni hans Mola.
