Sportsman´s Pride

Sportsman’s Pride Professional Formula Cat FoodSportsman’s Pride Professional Formula Cat Food Salmon & Chicken

Gæða kattafóður unnið úr gæða kjúklingamjöli, lax og þurrkaðri lifur sem hentar bæði kettlingum og fullorðnum köttum.

Úthugsuð næring fyrir heilbrigða ketti sem fá eðlilegt til mikla hreyfingu, gott jafnvægi prótína og fitu og góð viðbætt steinefni og vítamín sem stuðla að meiri lífsgæðum.

Fóðrið innheldur m.a. omega-3 og 6 fitusýrur fyrir húð og feld auk ölgers sem inniheldur góðar amínó sýrur sem stuðla að uppbyggingu vöðvamassa auk snefilefna og vítamína, en sérstaklega er ölger ríkt af B-vítamínum sem hjálpar kettinum að brenna prótíni í orku. Fóðrið inniheldur hágæða prótín úr dýraríkinu.

Sportsman´s Pride Professional Formula Cat Food er frábært fóður sem stuðlar að heilbrigði katta með notkun gæða hráefnis, hátt hlutfall prótína og fitu fyrir kjötætur.

Hefur gagnast köttum vel sem eiga erfitt með að halda þyngd og vöðvamassa og er vinsælt og bragðgott fóður meira að segja hjá matvöndum köttum.

  • Fitur og vítamín koma í veg fyrir myndun hárbolta
  • Auðmelt 
  • Heilbrigð húð og feldur
  • Super Premium Quality
  • Kettlingar og fullorðnir
  • Snögghærðir og síðhærðir
  • Innikettir eða útikettir

Taktu eftir að öll innihaldsefnin þekkir þú! Hrein og náttúruleg innihaldsefni.

Fóðrið er 34,5% prótein og 21,5% fita.

Stór poki, 7,5 kg, magnkaup sem gera þetta gæðafóður einstaklega hagkvæmt í innkaupum. 

Hér er ekki verið að eyða peningum í markaðssetningu og glansmyndir í kynningarefni, hagkvæm eining í flutningu, poki með rennilásalokun til að varðveita gæðin.  Allt þetta til þess að geta frekar  mætt gæludýraeigendum með frábæru fóðri á góðu kíló verði. Magnkaup sem margborgar sig.

Innihaldslýsing: kjúklingakjötmjöl, hrísmjöl, fitumjöl, maís, kjúklingafita (varðveitt með náttúrulegum tókoferum og sítrónusýru), lax, sykurrófur, þurrkuð lifur, ölger, vítamín og steinefni.

Hráprótein 34,5% Fyrir byggingu, vöxt, hreyfigetu, viðbragð
Hráfita 21,5% Orka og fyrir húð og feld
Hrátrefjar 2 % Fyrir góða meltingu
Aska (beinamjöl) 7 % Steinefni
Kalsíum 1,3 % Fyrir bein, liði, tennur, taugar, æðakerfi
Fosfór 1,2 % Fyrir stoðkerfið, bein, liði, tennur og hreyfanleika
Omega 3 og 6 6 % fyrir húð og feld og ónæmiskerfið
Magnesium 0,02 % fyrir vöðva og taugar
Raki < 9 %