Verðlaunahundar á Sportsman’s Pride – HRFÍ sumarsýningin 2025
Sportsman’s Pride/Dýrakofinn voru með bás á sumarsýningu HRFÍ um helgina til að kynna fóðrið og annað sem við höfum upp á að bjóða. Við erum stolt af okkar fólki sem er að fóðra hundana sína á Sportsman´s Pride, þeim gekk vel og unnu til fjölmargra verðlauna. Nú vinnum við bara í því að stækka þennan hóp af sigurvegurum 🙂
Frábær stemming og eins og góðri útihátíð sæmir var allskonar veður… allt frá roki og grenjandi rigningu til rjómablíðu.