Okkur þykir alltaf gaman að heyra reynslusögur frá viðskiptavinum okkar… hún Linda var búin að vera í vandræðum með hárlos og óþægindi í Boston Terrier tíkinni sinni Sölku sem var orðin hálf sköllótt greyið.
“Hæhæ mig langaði að deila með ykkur þessum myndum af Sölku. Eftir að hún byrjaði á Sportman’s Pride Lamb & Rice. Þetta er rosa breyting til hins betra og er ekkert smá þakklát að vinkona mín hafi bent mér á að prófa þetta fóður því ég var að gefast upp á tímabili, alltaf að prófa nýtt og nýtt fóður og ekkert virkaði.
Þetta er allavega algjör snilld og hefur hjálpað boston terrier tíkinni minni sem var farin að fá skallabletti.
Set með myndir til að sýna ykkur
Fyrri mynd er tekin í byrjun febrúar og sú seinni núna fyrir nokkrum dögum.”
Takk Linda fyrir að deila með okkur og gott að Salka er komin svona langt í bata!
