LJÓSMYNDAKEPPNI opin öllum hundum og köttum!
Ný keppni og úrslit í hverjum mánuði í sumar.
VERÐLAUN:
15 kg af hundafóðri frá Sportsman’s Pride í verðlaun fyrir bestu hundamyndina.
7,5 kg af kisumat frá Sportsman’s Pride í verðlaun fyrir bestu kisumyndina.
ATH. Verðlaun eru veitt í báðum flokkum.
Nú í sumar ætla Sportsman’s Pride á Íslandi ásamt Dýrakofanum að efna til ljósmyndakeppni með sumarið og dýrin sem þema. Ný keppni hefst í upphafi hvers mánaðar: júní, júlí og ágúst… Úrslit verða kynnt 3x yfir sumartímann, í upphafi mánaðar í júlí, ágúst og september.
Við viljum fá þína bestu mynd, þetta er spurning um gæði, ekki magn!
Við vitum að þegar besti vinurinn er myndaður þá þykir manni allar myndir æðislegar 🙂 en veljum mynd þar sem dýrið er skýrt og í fókus og er meirihlutinn af myndinni.
Einhverjar reglur verða að vera og eru þær hér fyrir neðan.
REGLUR:
- Höfundaréttur: þátttakandi verður að hafa tekið myndina og verður að eiga fullan rétt á myndinni.
- Vera fylgjandi á Facebook (www.facebook.com/SportsmansPrideIceland) eða Instagramsíðu Sportsman’s Pride á Íslandi (www.instagram.com/sportsmans_pride_iceland) og aukaverðlaun verða fyrir þá sem eru fylgjendur á báðum síðum.
- Sportsman’s Pride/Dýrakofinn er heimilt notað myndina til kynningar á fóðrinu með hverjum þeim hætti eða í hvaða miðli sem valinn er, hvort sem það er stafrænn miðill, prent eða annað.
- Við áskiljum okkur rétt til að klippa til myndina (crop) til að hún passi í það pláss sem henni er ætlað, en myndin verður líka kynnt í innsendri stærð.
- Myndin þarf að vera tekin sumarið 2026 frá 20. maí – 31. ágúst, þemað er SUMAR.
- Myndin má ekki vera samsett.
- Einföld myndvinnsla
- Við hvetjum þig til að “hressa” aðeins upp á myndina með því að auka /minnka contrast, saturation, highlight/shadow og annað sem telst til “venjulegrar myndvinnslu”.
- Ekki má fjarlægja neitt úr mynd né bæta við með myndvinnslu.
- Engar merkingar mega vera á myndinni, hvort sem það er logo, nafn höfundar, dagsetning eða annar texti.
- Ai myndir (gervigreind) eru sjálfkrafa úr leik, hvort sem þær eru alfarið gerðar í Ai eða einungis bætt við hlutum eða á einhver hátt breytt myndinni með Ai tólum.
- PERSÓNUVERND
- Ef fólk er auðþekkjanlegt á myndinni þarf að liggja fyrir samþykki þeirra eða forráðamanns barns.
- HAFÐU Í HUGA: Myndin gæti verið notuð til kynningar á fóðrinu svo það er mikilvægt að þeir sem eru þekkjanlegir á myndinni séu upplýstir um það frá ljósmyndara.
- Ljósmyndari ber fulla ábyrgð á að þetta sé í lagi, og ábyrgur fyrir öllum kröfum sem koma upp ef einhver gerir athugasemdir varðandi fólk á mynd eða staðsetningu.
- Þú þarft ekki að senda inn þessi samþykki, ef við fáum athugasemd vísum við á þann sem sendi inn myndina.
- Þú mátt senda inn eins margar myndir og þú vilt, en bara eina úr hverri “töku”, ekki senda margar svipaðar myndir, bara þá bestu.
- Myndin þarf að vera .jpg eða .png
- Lágmarksupplausn er 2000 px á lengri hlið.
- Skráarnafn myndar þarf að innihalda:dagsetningu, nafn höfundar og raðnúmer (raðnúmer er nauðsynlegt því hægt er að senda fleiri en eina mynd), Hafa bandstrik á milli . Dæmi: “8mai-OliHaukur-01.jpg” þannig að ef þú sendir fleiri myndir sama daginn þá er næsta: “8mai-OliHaukur-02.jpg” og svo framvegis.
- Skráarstærð má ekki fara yfir 10 MB
- Úrslit verða kynnt í upphafi mánaðar:
-í byrjun júlí fyrir tímabilið 20. maí – 30. júní,
-í byrjun ágúst fyrir tímabilið 1. -31. júlí
-í byrjun september fyrir tímabilið 1.- 31. ágúst. - Aðeins má senda hverja mynd einu sinni. og myndin verður að vera tekin á tilgreindum tímabilum, það er ekki leyfilegt að fara bara í gamlar myndir og finna þá bestu, pæling er að fara út að leika með hundinn, og taka myndir 🙂
- Með því að senda inn mynd samþykkir ljósmyndari reglurnar.
