Sportsman´s Pride

Sportsman´s Pride

Sportsman´s Pride er gæðafóður, upprunalega uppskriftin er frá Bandaríkjunum en fóðrið framleitt í Þýskalandi fyrir Evrópumarkað. 

Sportsman´s Pride er búið að vera í sölu á Íslandi a.m.k. 10 ár og mikið nota fyrir hunda sem þurfa mikla orku, til dæmis veiðihunda og er almenn ánægja með fóðrið í þeim hópi. VIð erum einnig í samstarfi við Björgunarhundasveit Íslands, en þar er mikil áhersla lögð á gæði fóðurs.

Vörulínan frá Sportsman’s Pride er einföld, aðeins 6 vöruflokkar: 

3 af þessum 6 eru má segja “sama fóðrið með kjúklingagrunn” en með mismunandi orkuinnihald:
gulur poki “maintenance” fyrir heimilishund sem fær venjulega hreyfingu, rauður poki”super premium” fyrir þá hunda sem eru aktífir, brenna náttúrulega miklu og/eða fá mikla hreyfingu og loks fjólublár poki “professional”fyrir þá hunda sem brenna mjög hratt og eru grannir, fá mjög mikla hreyfingu og reyna mikið á sig, hundar sem eru látnir draga, veiðihundar (t.d. á veiðitímabilinu), snjóflóðaleitarhunda o.s.fr. Rétt orkuinnihald hjálpar hundinum að halda kjörþyngd og vöðvamassa og gerir hann frekar í stakk búinn til að erfiða til skamms- eða langstíma.

Ljósbláir pokar, ” Senior & Light” eru fyrir eldri hunda og líka fyrir þá sem þurfa að létta sig eða hættir til að fitna, dökkblár poki “Puppy” er fyrir hvolpa frá 4 vikna til 12 mánaða. Allir eru þessir pokar framleiddir úr gæða kjúklingamjöli, og þá er bara eftir grænn poki “Lamb & rice” sem er með lambaketi og hrísgrjónum, en það er fóður fyrir hund sem fær venjulega hreyfingu en er mögulega með óþol fyrir kjúkling, er með kláða í húð eða eyrum eða óþarfa hárlos eða jafnvel meltingavandamál þar sem lamb er afar auðmelt.

Þess má geta Sportsman´s Pride er með gæðastimpilinn “SUPER PREMIUM DOG FOOD” og í Evrópusambandinu/Þýskalandi eru stífar reglur um notkun slíkra gæðastimpla. Flokkunina má aðeins nota ef verksmiðjan og hráefnið sem notað er uppfyllir strangar gæðakröfur – þá hafa innihaldslýsingar og næringartöflur einnig verið sannreyndar.