SPORTSMAN´S PRIDE er frábært alhliða þurrfóður fyrir hunda og ketti úr hágæða hráefni, án hveitis, án geymsluefna, bragðmikið og bragðgott.

Sportsman’s Pride hundafóðrið er gríðarlega vinsælt hjá vinnuhundum bæði veiði- og björgunarhunda enda framleitt úr hágæða hráefni. Fóðrið fæst í 3 orkuflokkum og því auðvelt að fóðra hunda í samræmi við álagið sem lagt er á þá. Fóðrið hefur gefið góða raun hjá  hundum með ýmis konar fæðuóþol, eða eiga erfitt með að halda þyngd og vöðvamassa.

Bæði hunda- og kattafóðrið er með “high acceptance” sem þýðir að dýrunum almennt finnst það gott og hentar fyrir matvanda. Viðbættar OMEGA 3 og  6 fitusýrur stuðla að heilbrigðum og glansandi feld og minnka hárlos.

Sportsman´s Pride er með gæðastimpilinn “SUPER PREMIUM DOG FOOD” og í Evrópusambandinu/Þýskalandi eru stífar reglur um notkun slíkra gæðastimpla. Flokkunina má aðeins nota ef verksmiðjan og hráefnið sem notað er uppfyllir gæðastandarda – þá hafa innihaldslýsingar og næringartöflur einnig verið sannreyndar.

Fóðrið fæst í Dýrakofanum á Eyravegi 23 Selfossi, í netverslun www.dyrakofinn.is einnig fer endursöluaðilum okkar um landið fjölgandi.
Dýrakofinn.is er innflutnings- og umboðsaðili Sportsman´s Pride á Ísland